

Poppstjarnan Cheryl opinberaði hvað skipti hana mestu máli á meðan hún var gift fyrrverandi enska landsliðsmanninum Ashley Cole.
Cheryl og Cole kynntust árið 2004 og gengu í hjónaband sumarið 2006 við glæsilega athöfn í Berkshire. Hann var þá einn þekktasti leikmaður Englands eftir dvöl sína hjá Arsenal og svo Chelsea og hún á hátindi vinsælda sinna. Þau voru því umtöluð og skóf Cheryl svo ekki af því er hún ræddi kynlíf þeirra.

„Kynlífið með Ashley er mikilvægara en nokkur peningaupphæð. Kynlíf gerir mig ánægða, ekki peningar. Hann lætur mér líða svo vel, hann er frábær,“ sagði Ceryl á sínum tíma.
„Við tæklum hvert annað í svefnherberginu og hann elskar þegar ég nudda á honum fæturnar,“ sagði hún svo er hún fór nánar út í smáatriði.
Sambandið entist þó ekki. Hjónabandinu lauk með skilnaði í september 2010 eftir ásakanir um framhjáhald af hálfu Cole.
Þrátt fyrir erfið endalok sögðu vinir Cheryl að hún hefði gengið frá skilnaðinum með reisn og horfði björtum augum fram á veginn.