fbpx
Föstudagur 05.september 2025
433Sport

Vill að Neymar erfi 140 milljarða sem hann skilur eftir – Lést á dögunum og málið er á borði yfirvalda

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. september 2025 08:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ótrúlegar fréttir berast nú frá Brasilíu þar sem fullyrt er að brasilískur milljarðamæringur hafi arfleitt Neymar rosalegum fjármunum

Samkvæmt fréttum frá brasilíska miðlinum RIC, þá hljóðar erfðaskrá hins látna upp á heilar 846 milljónir punda, sem jafngildir yfir 140 milljörðum króna. Vill hann að Neymar fái allt en þeir hittust aldrei.

Erfðaskráin var undirrituð og staðfestur þann 12. júní í Porto Alegre með tveimur vitnum viðstöddum. Málið er nú í höndum brasilískra dómstóla sem þurfa að staðfesta arftökuna áður en Neymar getur formlega tekið við eignunum.

Hinn látni er sagður einstæður og barnlaus, og samkvæmt heimildum staðbundinna fjölmiðla „samsvaraði hann sér við Neymar á persónulegum forsendum“ sem gæti skýrt þá ákvörðun að láta stjörnuna erfa allt.

Neymar, sem er 33 ára, hefur ekki tjáð sig opinberlega um þessar óvæntu fregnir, en jafnvel þótt erfðaskráin verði samþykktur gæti hann enn staðið frammi fyrir lögfræðilegum flækjum áður en fjármunirnir skipta um hendur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Íslensku drengirnir töpuðu fyrsta leiknum

Íslensku drengirnir töpuðu fyrsta leiknum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Óvænt tíðindi frá Tottenham – Daniel Levy hætti störfum í dag

Óvænt tíðindi frá Tottenham – Daniel Levy hætti störfum í dag
433Sport
Í gær

Emi Martinez rýfur þögnina eftir að United hætti við að kaupa hann

Emi Martinez rýfur þögnina eftir að United hætti við að kaupa hann
433Sport
Í gær

Bikiní-bomban ratar á forsíðurnar eftir að eiginmaður hennar skipti um vinnu

Bikiní-bomban ratar á forsíðurnar eftir að eiginmaður hennar skipti um vinnu