Ralf Rangnick, fyrrverandi tímabundinn stjóri Manchester United, hefur áður gefið sterklega í skyn hver hann teldi henta best til að taka við stjórnartaumunum á Old Trafford ef Ruben Amorim yrði látinn taka pokann sinn.
Amorim, 40 ára, er undir mikilli pressu eftir vonbrigðalegt gengi United. Liðið tapaði 3-1 gegn Brentford um helgina og er nú í 14. sæti eftir aðeins tvo sigra í fyrstu sex deildarleikjum. Þá er liðið þegar fallið úr deildarbikarnum eftir niðurlægjandi tap gegn Grimsby.
Amorim heldur þó fast í 3-4-3 kerfið þrátt fyrir harða gagnrýni og vonlausa frammistöðu liðsins. Margir telja að brottrekstur hans sé aðeins tímaspursmál.
Þrír mögulegir arftakar hafa verið nefndirm Gareth Southgate, Oliver Glasner og Andoni Iraola. Rangnick, sem stýrði United tímabundið 2021/22, virðist helst styðja Glasner, núverandi stjóra Crystal Palace.
Rangnick þekkir Glasner vel hann réð hann sem aðstoðarþjálfara hjá Red Bull Salzburg árið 2012 og hefur lýst honum sem „einum mest spennandi þjálfara Evrópu.“
Glasner hefur sannað sig með titla í bæði Austurríki og Þýskalandi og vann FA bikarinn með Palace árið 2025.