fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Athyglisverð staða í Hafnarfirði – „Án útskýringa lítur þetta furðulega út“

433
Mánudaginn 29. september 2025 15:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Guðjónsson sagði eftir leik FH gegn Breiðabliki um helgina að hann yrði ólíklega þjálfari liðsins áfram. Þetta var til umræðu í Íþróttavikunni á 433.is í dag.

Heimir er á sínu þriðja tímabili með FH eftir að hann sneri aftur til félagsins og hefur hann gert vel, skilaði liðinu til að mynda í efri hluta Bestu deildarinnar annað árið í röð.

„Það hefur enginn talað við mig og ég veit ekki neitt. Eins og staðan er í dag þykir mér ólíklegt að ég haldi áfram. Ég hef áhuga á því að vera áfram. Við spilum í dag gegn Íslandsmeisturum og erum óheppnir að vinna ekki leikinn, höfum fengið 7 stig af 9 mögulegum gegn Breiðabliki.

Í síðustu umferð spiluðum við gegn Stjörnunni, sem hefur verið heitasta liðið í deildinni, og áttum möguleika á því að vinna þann leik. Við byrjuðum þessa vegferð í haust og höfum spilað mjög vel í seinni umferðinni en þetta er bara staðan eins og hún er í dag,“ sagði Heimir við Fótbolta.net um helgina.

„Þetta er furðulegt. Heimir hefur gert fína hluti og ekki alltaf með besta efniviðinn, en það virðist sem svo að það sé bara verið að ýta honum út,“ sagði Helgi Fannar Sigurðsson í Íþróttavikunni.

Hörður Snævar Jónsson var einnig í þættinum og tók til máls.

„Það hljóta að koma einhverjar forsendur frá FH-ingunum ef af þessu verður, svo það er svolítið erfitt að fabúlera um það þangað til. En FH var í fallbaráttu þegar Heimir kom aftur og hann hefur náð að rétta af skútuna.

Ef maður skoðar leikskýrslu FH-inga eru kannski tveir leikmenn sem maður myndi henda inn í liðið hjá Blikum. Svo að vera nokkurn veginn á pari við þá á þessu tímabili er virkilega vel gert,“ sagði hann.

„Án útskýringa frá FH-ingum lítur þetta furðulega út því Heimir hefur gert góða hluti frá því hann kom aftur,“ sagði Hörður enn fremur.

Þátturinn í heild er í spilaranum, sem og á helstu hlaðvarpsveitum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah