Billy Vigar, fyrrum unglingastjarna Arsenal og núverandi leikmaður Chichester City, hefur legið í dái á sjúkrahúsi eftir alvarlegt höfuðhögg sem hann varð fyrir í leik um helgina.
Vigar, 21 árs framherji, meiddist alvarlega í upphafi leiks gegn Wingate & Finchley í Isthmian Premier-deildinni (sjöunda deild enska fótboltans). Atvikið átti sér stað innan fyrstu 15 mínútna leiksins.
Í tilkynningu frá Chichester City á samfélagsmiðlinum X segir: „Billy varð fyrir alvarlegum heilaskaða og er nú í dái á gjörgæslu, þar sem hann fær bestu mögulegu meðferð. Það er of snemmt að segja til um horfur og jafnvel þó allt fari vel, þá er löng endurhæfing framundan.“
Samkvæmt Sussex World er talið að meiðslin hafi ekki orðið við árekstur við annan leikmann, heldur í árekstri við harðan flöt utan vallar.
Vigar fékk aðhlynningu frá sjúkraliði á vellinum áður en hann var fluttur með sjúkrabíl og svo fluttur með þyrlu á sjúkrahús í London. Leikurinn var strax stöðvaður og leik hætt.
Billy Vigar hóf feril sinn hjá Arsenal aðeins 14 ára gamall og komst upp í U21-liðið. Hann lék einnig með Derby County og Eastbourne Borough á lánssamningum áður en hann yfirgaf Arsenal árið 2024 og gekk til liðs við Hastings United í neðri deildum Englands.