Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ bað fulltrúa franska knattspyrnusambandsins afsökunar á mistökum sem urðu í Laugardalnum í gær.
Þetta kemur fram í frönskum fjölmiðlum en fyrir leik Íslands og Frakklands urðu mistök þegar þjóðsöngur Frakklands fór af stað.
Fleiri hljóð voru í kerfinu á sama tíma, þar á meðal var bein útsending RÚV frá leiknum.
„Leikmenn franska landsliðið voru við það að hlæja en náðu áttum og sungu með þegar þetta var lagað,“ skrifar franska blaðakonan, Syanie Dalmat.
Dalmat var mætt í Laugardalinn í gær og tók myndband af þessu en leiknum lauk með 0-2 sigri Frakklands.
Bug pendant l’hymne français avant le match face à l’Islande. Ça rappelle forcément le ténor qui avait chanté la Marseillaise en 1998… à sa manière. pic.twitter.com/4XgJiMnYTc
— Syanie Dalmat (@SyaneDalmat) June 3, 2025