Franco Mastantuono 17 ára gamall miðjumaður River Plate er gríðarlega eftirsóttur og er hann sagður eitt mesta efni Argentínu um langt skeið.
Mastantuono var sagður nálægt því að ganga í raðir PSG og var það samtal komið langt á veg.
Nú er hins vegar komin gríðarleg samkeppni þar sem Real Madrid er byrjað að ræða við Mastantuono og River Plate.
Draumur Mastantuono hefur alla tíð verið að ganga í raðir Real Madrid er það sagt hjálpa félaginu í þessum slag.
Búist er við að félögin reyni á næstu dögum að sannfæra Mastantuono að koma en hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem spilað hefur fyrir yngri landslið Argentínu.
Þá er Mastantuono í hópi A-landsliðs Argentínu núna sem er á leið í leiki þar sem hann gæti spilað sinn fyrsta leik.