Alekss Kotlevs hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Breiðablik. Alekss, sem er 17 ára gamall, er með tvöfalt ríkisfang, þ.e. íslenskt og lettneskt.
Hann hefur spilað þrjá leiki fyrir U15 ára landslið Íslands og þá á hann einnig leiki fyrir U17 ára landslið Lettlands, þann síðasta í október á síðasta ári.
Alekss lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Breiðabliks í febrúar sl., þegar hann kom inná í leik í Lengjubikarnum.
Kotlevs er mikið efni en hann er varnarmaður og leikur oftast sem hægri bakvörður