Fabrizio Romano segir frá því að Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United hafi ákveðið að hafna tilboði frá Al-Hilal í Sádí Arabíu.
Tilboðið hefði gert Bruno að einum launahæsta leikmanni í heimi.
Eftir að hafa hugsað málið ákvað Bruno hins vegar að vera áfram hjá United, vill hann spila áfram í Evrópu.
Bruno hefur verið jafn besti leikmaður United síðustu ár og því hefði það orðið mikið áfall fyrir félagið ef hann færi.
Bruno átti gott tímabil í ár þrátt fyrir hörmungar United innan sem utan vallar.