David Coote fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni er farin að bera út póst fyrir fyrirtækið Evri í Englandi.
Coote var rekinn úr ensku deildinni eftir að myndbönd af honum að taka kókaín fyrir leiki fóru í umferð.
Þá fór myndband af Coote að urða yfir Liverpool og Jurgen Klopp einnig í umferð. „Ég er bara að reyna að ná endum saman með því að vinna,“ segir Coote við ensk blöð.
Fólk sem lét ensk blöð vita af þessu var hissa þegar þau sáu Coote mættan með pakka til þeirra.
„Ég vil halda áfram með líf mitt, ég er að reyna að halda áfram og taka ábyrgð.“
David coote ladies and gentlemen pic.twitter.com/WDHc36a7Mn
— Josh (@Josh97LFC) November 11, 2024