Nick Pope, markvörður Newcastle, virðist hafa gefið í skyn hvaða leikmaður er á leið til félagsins í sumar.
Enskir miðlar fjalla um málið en maðurinn sem er mögulega á leið til Newcastle er markvörðurinn James Trafford.
Trafford er markvörður Burnley en hann hefur verið orðaður við Newcastle og myndi þar berjast við Pope um aðalmarkvarðarstöðuna.
Trafford birti myndband á Instagram síðu sína og fékk ‘komment’ frá Pope: ‘Sjáumst bráðlega.’
Enskir miðlar vilja meina að þetta gefi sterklega í skyn að Trafford sé á leið til Newcastle en hann var frábær fyrir Burnley í vetur sem tryggði sér sæti í efstu deild á ný.