Goal.com birti ansi athyglisverðan lista á heimasíðu sinni í gær þar sem fjallað var um verstu kaup tímabilsins í Evrópu.
Listinn telur alls 20 leikmenn en toppsætið er í eigu sóknarmannsins Joao Felix sem var keyptur til Chelsea fá Atletico Madrid.
Felix kostaði Chelsea um 46 milljónir punda en eftir fá tækifæri var hann lánaður til AC Milan í janúar þar sem hlutirnir gengu heldur ekki upp.
Felix var gríðarlegt undrabarn á sínum tíma og kostaði Atletico 120 milljónir evra árið 2019 en hann er 25 ára gamall í dag.
Goal telur að Felix séu einfaldlega verstu félagaskipti Evrópu á tímabilinu en annað sætið er lánssamningur Raheem Sterling til Arsenal.
Felix er ekki aðeins í fyrsta sæti á þessum lista en hann er einnig í fimmta sæti en þar er fjallað um lánssamning hans við Milan sem gekk svo sannarlega ekki upp.