Gustavo Hamer er á leið frá Sheffield United en leikmaðurinn ætlar sér að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Hamer og félagar misstu af sæti í deild þeirra bestu um liðna helgi þegar Sheffield tapaði í umspili.
Hamer verður 28 ára á þessu ári en hann kemur frá Hollandi.
Hann hefur verið í tvö ár hjá Sheffield en nú eru tvö lið í ensku úrvalsdeildinni sem vilja semja við hann.
Segir Talksport að bæði Everton og Leeds vilji semja við hann en bæði félög eru staðsett nálægt Sheffield.