Chelsea og Real Betis mætast í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Leikurinn fer fram í Póllandi og eru veðbankar á því að enska liðið taki bikarinn heim til London.
Á Lengjunni er stuðullinn til að mynda 1,78 á sigur Chelsea, 4 á Betis og 3,34 á jafntefli.
Leikurinn hefst klukkan 19 í kvöld að íslenskum tíma.