Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir mun ekki taka þátt í leik Íslands gegn Noregi á föstudag þar sem hún er að útskrifast frá Harvard háskóla á fimmtudag.
Hún kemur til móts við liðið á Íslandi og verður til taks fyrir leikinn gegn Frakklandi.
Áslaug er öflugur bakvörður sem hefur stundað nám við Harvard skólann síðustu ár.
Erlendir nemendur verða á næsta ári bannaðir í Harvard vegna þess regluverks sem Donald Trump hefur sett á skólann.
Harvard hefur verið í stríði við Trump og hann hefur því ákveðið að herða reglur í kringum skólann og hótað því að taka af honum fjármuni.