fbpx
Miðvikudagur 26.nóvember 2025
433Sport

Valur staðfestir að Chris Brazell sé kominn í nýtt starf hjá félaginu

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 26. nóvember 2025 18:44

Mynd: Valur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chris Brazell er nýr aðstoðarþjálfari karlaliðs Vals, en þetta var staðfest í dag. Tekur hann við þessu starfi af Hauki Pál Sigurðssyni.

Chris var þegar í starfi hjá Val sem afreksþjálafari og hefur hann getið sér gott orð. Þar áður var hann aðalþjálfari karlaliðs Gróttu.

Tilkynning Vals
Knattspyrnufélagið Valur hefur ráðið Christopher Brazell sem nýjan aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Chris kemur inn í þjálfarateymið með verulega reynslu, sérþekkingu og hæfni sem mun styrkja liðið til framtíðar.

Chris hefur þegar haft umtalsverð áhrif innan félagsins frá því hann kom til okkar í janúar á þessu ári. Á skömmum tíma hefur hann skapað sér orðspor innan Vals sem faglegur, metnaðarfullur og framsækinn þjálfari sem leggur mikla áherslu á þróun leikmanna og gæði í allri þjálfun úti á vellinum.

Chris, 33 ára, hefur lokið UEFA Pro Licence þjálfaragráðu hjá enska knattspyrnusambandinu og er einn yngsti þjálfarinn til að fá þá gráðu.

Hann býr yfir fjölbreyttri reynslu úr þjálfun og þróun leikmanna; hefur verið aðalþjálfari, aðstoðarþjálfari og yfirmaður unglingastarfs hjá Gróttu, auk þess sem hann hefur gegnt fjölmörgum hlutverkum hjá Norwich City á Englandi. Þá hefur Chris einnig starfað hjá stórliðum á borð við FC Köln og Borussia Dortmund í Þýskalandi í tengslum við þróunarverkefni.

„Við erum mjög ánægð með að fá Chris inn í teymið hjá meistaraflokki karla. Frá því hann kom til félagsins á síðasta tímabili hafa leikmenn, þjálfarar og lykilaðilar í kringum liðið séð þau gæði sem hann býr yfir. Hann hefur sýnt seiglu og auðmýkt í erfiðum aðstæðum – eiginleikar sem skipta öllu máli í vegferð hvers þjálfara.

Þjálfunarhæfni hans, ástríða fyrir leiknum og jákvætt viðmót munu nýtast bæði leikmönnum og þjálfurum félagsins. Ráðning hans undirstrikar áherslur okkar á skýrum leikstíl, gæðum í þjálfun og markvissri leikmannaþróun – jafnt hjá reynslumiklum leikmönnum sem og yngri,“ segir Gareth Owen, tæknilegur ráðgjafi Vals.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Segir FIFA gera lítið úr öðrum leikmönnum eftir Ronaldo ákvörðunina í gær

Segir FIFA gera lítið úr öðrum leikmönnum eftir Ronaldo ákvörðunina í gær
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Rooney var á Brúnni í gær – Segir þetta eina bestu frammistöðu bakvarðar sem hann hefur séð

Rooney var á Brúnni í gær – Segir þetta eina bestu frammistöðu bakvarðar sem hann hefur séð
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Með furðulega kenningu um slæmt gengi Liverpool

Með furðulega kenningu um slæmt gengi Liverpool
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hinn bráðefnilegi Valdimar Arnar skrifar undir hjá Fredrikstad – Skoraði 34 mörk í sumar

Hinn bráðefnilegi Valdimar Arnar skrifar undir hjá Fredrikstad – Skoraði 34 mörk í sumar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

FIFA beygir reglurnar sínar – Ronaldo verður ekki í banni á HM

FIFA beygir reglurnar sínar – Ronaldo verður ekki í banni á HM
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Chelsea fór illa með Barcelona – Óvænt í Manchester

Chelsea fór illa með Barcelona – Óvænt í Manchester
433Sport
Í gær

Slagsmál í miðbænum vekja óhug – Sjáðu myndbandið

Slagsmál í miðbænum vekja óhug – Sjáðu myndbandið
433Sport
Í gær

Kane tjáir sig um orðrómana

Kane tjáir sig um orðrómana