Daníel Rúnarsson, einn eiganda Fótbolta.net vandar landsliðsþjálfaranum, Þorsteini Halldórssyni og Knattspyrnusambandi Íslands ekki kveðjurnar á X-inu.
Nú er í gangi Evrópumót kvenna og hefur borið á gagnrýni á KSÍ fyrir aðgengi fjölmiðla að liðinu. Fáar útvaldar fara í viðtöl og er það sambandið sem velur leikmennina.
Daníel er ósáttur með þetta en ekki síður hvernig Þorsteinn svarar fyrir hlutina í fjölmiðlum og þá sérstaklega hvernig hann talar um fjölmiðlamennina sem fylgja liðinu. „Ég ráðlegg þeim alveg í kringum þetta en á endanum þurfa þær að ákveða sjálfar hvernig þær meðhöndla það. Ég er ekki að banna þeim neitt en ég ráðlegg þeim að lesa ekki neitt af bullinu eftir ykkur,“ sagði Þorsteinn við Fótbolta.net í gær.
Við þetta er Daníel óhress og byrjar á að skrifa. „Fjölmiðlar eru að rembast við að elta kvennaliðið á einhverju dýrasta EM allra tíma. Vikan fyrir einn mann er á svona 1-1.5m. Kostnaður íslenskra miðla telur líklega í tugum milljóna. Aðgengið að liðinu versnar á hverju móti og viðmót þjálfarans er svona,“ skrifar Daníel.
Hann segir engan sem kemur að liðinu hafa gert neitt til að vekja athygli á liðinu fyrir mót. „Sambandið, leikmenn og aðrir í kringum liðið gerðu ekkert til að auka umfjöllun um liðið fyrir mót. Skætingur í viðtölum við leikmenn, engin media moment dagana fyrir eða við brottför. Ekkert samráð á milli KSÍ og fjölmiðla fyrir mótið.“
Daníel segir að fjölmiðlar tapi peningum á að elta landsliðið. „Það þarf samstillt átak allra til að fá athygli og stemmingu hjá þjóðinni fyrir þessum mótum og í þeim tangó hafa fjölmiðlar dansað einir þetta sumarið í þeirri veiku von að tapa ekki of miklum peningum á umfjölluninni.“
Fjölmiðlar eru að rembast við að elta kvennaliðið á einhverju dýrasta EM allra tíma. Vikan fyrir einn mann er á svona 1-1.5m. Kostnaður íslenskra miðla telur líklega í tugum milljóna. Aðgengið að liðinu versnar á hverju móti og viðmót þjálfarans er svona https://t.co/6uF8q5mgcS
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) July 4, 2025