Ummæli Helenu Ólafsdóttir stjórnanda Bestu markanna um Bestu deild kvenna hafa vakið athygli og sumir hneykslast á þeim.
Magnús Haukur Harðarson fyrrum þjálfari Fjölnis vekur athygli á þessu á X-inu hans Elon Musk í dag.
Þar birtir hún klippu úr Stúkunni þar sem Helena og félagar eru að fara yfir atvik úr leik FH og Tindastóls.
Rætt var um líkamlega yfirburði sem Ída Marín Hermannsdóttir sóknarmaður FH hafði í leiknum en hún skoraði tvö góð mörk í leiknum.
Helena átti erfitt með að koma því að orði hvernig hún ætti að lýsa Ídu sem leikmanni „Þetta minnir mig á Sveindísi (Jane Jónsdóttir), ekki líkir leikmenn. Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra þetta, hún gæti verið brún,“ sagði Helena og var þá að tala um líkamlega yfirburði hennar.
Atvikið er hér að neðan en Magnús Haukur skrifaði. „Að vera “athletic” er komið með íslenska þýðingu. Galið að láta þetta út úr sér,“ skrifar Magnús.
Að vera “athletic” er komið með íslenska þýðingu.
Galið að láta þetta út úr sér. #Bestakvenna pic.twitter.com/qvMQaUqy6M
— Max Koala (@Maggihodd) June 18, 2025