fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
433Sport

Ræddu stór orð Davíðs Smára og greindu stöðuna – „Ég skil hann, þú verður að reyna að hemja þig“

433
Þriðjudaginn 3. júní 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Smári Lamude þjálfari Vestra var sár og svekktur um helgina eftir að löglegt mark var tekið af liðinu í 2-1 tapi gegn KR á útivelli. Markið kom þegar Vestri var 1-0 yfir í leiknum.

Davíð lét stór orð falla um Twana Khalid Ahmed dómara leiksins eftir leik og aðstoðarmenn hans sem gerðu sig seka um mistök í leiknum.

Málið var rætt í Stúkunni á Stöð2 Sport í gær.

„Ef þú myndir setja míkrófóninn fyrir framan hann núna þá fengum við ekki þessa útkomu, hann áttar sig á því að þetta er ekki dómaranum að kenna. Hann tekur ekki ákvörðun um þessa rangstöðu, hann er svekktur að það sé tekið mark af þeim,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson sérfræðingur og fyrrum landsliðsmaður.

Lárus Orri segir að vel sé haldið utan um dómara. „Ég held að niðri í Laugardal sé fylgst vel með dómurunum, skoða hvað er rangt og rétt og fara yfir það. Ef menn standa sig illa trekk í trekk þá eru menn teknir niður fyrir það.“

Ólafur Kristjánsson var næstur til að ræða málið og fara yfir það sem Davíð Smári lét hafa eftir sér. „Stór orð hjá Davíð, við erum búnir að hrósa honum. Leikplanið hjá þeim var að ganga upp, 2-0 hefði verið þægilegri staða. Aðstoðardómarinn er ekki að leika sér að þessu, þetta er eitthvað sem við verðum að lifa með,“ sagði Ólafur í Stúkunni.

„Þetta er ógeðslega súrt en engu að síður staðreynd, þegar við sjáum þetta aftur og búið er að frysta myndina þá er auðvelt að sjá að hann var réttstæður. Það eru atvik þarna í leiknum, færi sem Vestri skapar sér sem hafa líka áhrif á úrslitin. Það er eitthvað sem Davíð og þeir geta haft áhrif á.“

Ólafur segir dómara hafa staðið sem prýði í sumar. „Mér finnst dómgæslan hafa verið prýðileg, það verða alltaf vafaatriði. Ef það væri ekki þannig, þar sem VAR er komið þá eru menn súrir og ósáttir. Þetta fær okkur til að tala um leikinn, Davíð fór yfir strikið. Ég skil hann, þú verður að reyna að hemja þig. Allir sem hafa þjálfað hafa notað stór orð, þetta er hluti af starfinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þrjú félög í Sádí Arabíu vilja fá Jadon Sancho – Eina leið hans til að halda sömu launum

Þrjú félög í Sádí Arabíu vilja fá Jadon Sancho – Eina leið hans til að halda sömu launum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Inter byrjað að ræða við Fabregas um að taka við

Inter byrjað að ræða við Fabregas um að taka við
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Guardiola virðist ætla að sækja í hugmyndabanka Liverpool – Þrír fyrrum starfsmenn sagðir á leið til City

Guardiola virðist ætla að sækja í hugmyndabanka Liverpool – Þrír fyrrum starfsmenn sagðir á leið til City
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ný auglýsing fyrir EM kvenna kallar fram gæsahúð

Ný auglýsing fyrir EM kvenna kallar fram gæsahúð
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Jóhann Berg getur orðið sá fimmti í sögunni á föstudag

Jóhann Berg getur orðið sá fimmti í sögunni á föstudag
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hefur ekki neinn áhuga á að spila áfram á Englandi

Hefur ekki neinn áhuga á að spila áfram á Englandi