Maurizio Sarri er tekinn aftur við Lazio en þetta hefur ítalska félagið staðfest á heimasíðu sinni.
Sarri er 66 ára gamall en hann var hjá Lazio frá 2021 til 2024 og hefur ekki þjálfað síðan en er nú mættur aftur.
Sarri er mjög reynslumikill þjálfari en hann hefur einnig stýrt liðum eins og Napoli, Chelsea og Juventus.
Sarri tekur við af Marco Baroni sem stýrði liðinu í vetur en iðið hafnaði í sjöunda sætinu í Serie A.
Ítalinn gerði fína hluti með Lazio á þessum þremur árum en á enn eftir að vinna titil hjá félaginu.