Jobe Bellingham hefur ákveðið að ganga í raðir Borussia Dortmund en hann hafði rætt við nokkur þýsk félög.
Jobe átti fund með Frankfurt og Leipzig en kaus á endanum að fara til Dortmund.
Nú þarf þýska félagið að ná samkomulagi við Sunderland sem vill fá greidda þá upphæð sem segir til í samningi hans.
Jobe er með 40 milljóna evra klásúlu í samningi sínum en Sunderland er aftur komið í deild þeirra bestu á Englandi.
Jobe fetar því líklega í fótspor stóra bróðis en Jude Bellingham átti frábæra tíma hjá Dortmund áður en hann fór til Real Madrid.