fbpx
Sunnudagur 02.nóvember 2025
433Sport

Nökkvi Þeyr keyptur í hollensku úrvalsdeildina

Victor Pálsson
Laugardaginn 31. maí 2025 21:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nökkvi Þeyr Þórisson hefur verið keyptur til hollenska félagsins Sparta Rotterdam en þetta herma öruggar heimildir 433.is.

Nökkvi er 25 ára ganmall sóknarsinnaður leikmaður sem hefur undanfarin tvö ár verið samningsbundinn St. Louis í Bandaríkjunum.

Sparta fékk Nökkva á láni seinni hluta tímabils í Hollandi þar sem hann lék níu leiki og skoraði í þeim eitt mark.

Hollenska félagið var hrifið af frammistöðu Nökkva og ákvað að festa kaup á leikmanninum sem á að baki einn landsleik fyrir Ísland.

Nökkvi hefur spilað í atvinnumennsku frá árinu 2022 en hann yfirgaf þá lið KA fyrir Beerschot í Belgíu og hélt þaðan til St. Louis.

Kristian Nökkvi Hlynsson spilaði einnig með Sparta á síðasta tímabili eftir komu frá Ajax í sama landi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola líkir enska boltanum við NBA – Þetta er ástæðan

Guardiola líkir enska boltanum við NBA – Þetta er ástæðan
433Sport
Í gær

„Það léttir á öllu, það er bara svart og hvítt“

„Það léttir á öllu, það er bara svart og hvítt“