Dómstólar í Hollandi fara fram á níu ára fangelsi yfir hollenska knattspyrnumanninum, Quincy Promes.
Promes var ákærður fyrir tæpu ári síðan og er sagður hafa átt hlut á því að hafa smyglað 1361 kíló frá Belgíu yfir til Hollands.
Promes hefur spilað 50 landsleiki fyrir Holland og skorað í þeim sjö mörk.
Promes var dæmdur síðasta sumar í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa stungið frænda sinn í fjölskylduboði.
Ekki er þó líklegt að Promes fari á bak við las og slá, Promes er í dag leikmaður Spartak Moskvu og þar er enginn samningur um framsal.
Promes er að vinna í því að fá rússneskt vegabréf og er talið að það fari í gegn en hann hefur spilað fyrir Ajax, Sevilla og fleiri lið.