Daníel Ingi Jóhannesson, 16 ára gamall leikmaður ÍA, er á leið til Nordsjælland í Danmörku í sumar.
Daníel er gríðarlega efnilegur og hefur þegar komið við sögu með ÍA í Lengjudeildinni í sumar. Hann er bróðir Ísaks Bergmann Jóhannessonar, sem er á mála hjá FC Kaupmannahöfn, en faðir þeirra er Jóhannes Karl Guðjónsson. Daníel er miðjumaður líkt og faðir sinn og bróðir.
„Ég held að það sé mjög gott skref, ég held að Nordsjælland sé perfect klúbbur fyrir ungan leikmann til að bæta sig,“ segir Ísak Bergmann í samtali við 433.is.
Ísak Bergmann er búsettur í Kaupmannahöfn en skoðar aðra kosti eftir lítinn spilatíma á þessu tímabili, verði hann áfram hjá FCK munu þeir bræður búa í sömu borginni.
„Þeir búa til ógeðslega góða leikmenn sem fara út í heim og gera það gott, ég held að þetta sé fullkomið skref,“ segir Ísak um ákvörðun litla bróðurs.
Viðtalið við Ísak er í heild hér að neðan.