fbpx
Laugardagur 01.apríl 2023
433Sport

Harðorð yfirlýsing frá Gumma Ben – Sakar Arnar um að ráðast á son sinn og gera lítið úr honum

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 17. mars 2023 14:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttamaður og fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu hefur sent frá sér yfirlýsingu á Vísir.is. Þar sakar hann Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfara um að ráðast á son sinn og gera lítið úr honum.

Sonur Guðmundar er Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa á Ítalíu. Fjallað hefur verið ítarlega um mál Alberts undanfarna daga og Arnar Þór hefur sagt að hann vilji ekki vera í landsliðinu á sömu forsendum og aðrir.

Gummi er hissa á því að sambandið hafi ekki tekið málið fyrir og látið viðgangast. ,,En endalausar árásir að heiðri og persónu Alberts þegar hann er ekki í hópnum mun ég ekki líða lengur og þykir mér með ólíkindum að Knattspyrnusambandið láti þetta viðgangast.“

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, segir að Albert Guðmundsson hafi ekki verið til í að koma inn í landsliðshópinn eftir að honum var tjáð að hann yrði ekki í byrjunarliði í komandi landsleik gegn Bosníu og Hersegóvínu.

Þetta kom fram á fréttamannafundi landsliðsins í gær en Albert er ekki í hópnum en undanfarið hefur Arnar ekki valið hann út af hugarfari leikmannsins.

„Eftir símtal þeirra á milli ákveður hann að ráðast á Albert og ekki í fyrsta sinn sem þjálfarinn reynir að gera lítið úr honum eftir að hafa tilkynnt hóp sinn. Ég veit ekki hvaða belgísku þjálfaranámskeið AÞV hefur setið en ég vona að þessi nálgun sé ekki kennd þar né á öðrum námskeiðum.“

Yfirlýsing Gumma Ben sem birtist á Vísir.is
Ég hef nánast setið á strák mínum allt frá ráðningu Arnars Þór Viðarssonar þrátt fyrir að hafa ýmislegt við framkomu hans á fjölmiðlafundum að athuga eftir að hann tók til starfa.

Ég viðurkenni þó að ég hafði samband við Guðna Bergsson, þáverandi formann á sínum tíma, og bað hann að finna hjálp fyrir AÞV (Arnar Þór Viðarsson) til að undirbúa hann betur undir blaðamannafundi.

Meginástæðan fyrir því að ég hef ekki tjáð mig opinberlega fyrr er að ég er íþróttafréttamaður. En ég er fyrst og fremst faðir Alberts Guðmundssonar sem hefur verið viðriðinn landsliðið undanfarin ár.

Mér var hins vegar nóg boðið í gær eftir síðustu ummæli AÞV.

Rétt er að taka fram að ég geri enga kröfu á að Albert eigi að vera í landsliðshópi. AÞV var ráðinn til að stjórna því og getur gert hvað sem honum sýnist í þeim efnum.

En endalausar árásir að heiðri og persónu Alberts þegar hann er ekki í hópnum mun ég ekki líða lengur og þykir mér með ólíkindum að Knattspyrnusambandið láti þetta viðgangast.

Í síðustu viku bjallaði AÞV í Albert og ræddi mögulega endurkomu Alberts í landsliðið. Þeir áttu fínt samtal, samkvæmt Alberti, en niðurstaðan var að Albert taldi best að hann gæfi ekki kost á sér í þetta verkefni af ýmsum ástæðum.

AÞV heldur því fram að eina ástæðan sé að Albert neiti að vera varamaður sem er ekki rétt.

„Ég vel ekki leikmenn sem vilja ekki vera á bekknum,“ sagði Arnar við fjölmiðla.

Fjölskylduástæður spiluðu stóra rullu í ákvörðun Alberts ásamt stöðu Genoa í ítölsku deildinni og það veit AÞV mæta vel en ákveður að láta leikmanninn líta illa út enn og aftur.

Þess má líka geta að Albert hefur aldrei tjáð sig um þjálfarann og persónuna AÞV þrátt fyrir ótal tækifæri til að fara í leðjuslaginn sem AÞV virðist elska og fjölmiðlar apa upp eftir honum.

Ég kalla þetta leikþátt og ég stend við það þar sem ég er þess fullviss að AÞV hafði engan áhuga á að velja Albert en taldi sig nauðbeygðan þar sem Alberti hefur gengið vel á Ítalíu að undanförnu.

Eftir símtal þeirra á milli ákveður hann að ráðast á Albert og ekki í fyrsta sinn sem þjálfarinn reynir að gera lítið úr honum eftir að hafa tilkynnt hóp sinn. Ég veit ekki hvaða belgísku þjálfaranámskeið AÞV hefur setið en ég vona að þessi nálgun sé ekki kennd þar né á öðrum námskeiðum.

Persónulega hefði ég tilkynnt í september 2022 að ég myndi aldrei spila fyrir Ísland aftur undir stjórn AÞV eftir árásirnar frá þjálfaranum en sem betur fer er ég ekki Albert og hann er alltaf stoltur að fá að spila fyrir Ísland.

Ég óska íslenska liðinu velgengni í verkefninu sem framundan er og þar af leiðandi þjálfaranum en vona líka innilega að hann læri að umgangast fólk sem er mikilvægast í þjálfun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Edda Falak braut lög

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

„Skíturinn sem gekk yfir stjórnarmenn þegar öll málin voru í gangi“

„Skíturinn sem gekk yfir stjórnarmenn þegar öll málin voru í gangi“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Staðfestir það að hann væri í erfiðleikum með að hafna Bayern Munchen

Staðfestir það að hann væri í erfiðleikum með að hafna Bayern Munchen
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hlustaði ekki á aðstoðarmanninn sem sagði honum að kaupa Grealish

Hlustaði ekki á aðstoðarmanninn sem sagði honum að kaupa Grealish
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Liverpool hefur 12 leiki til að bæta upp fyrir tímabilið – ,,Það er svo sárt“

Liverpool hefur 12 leiki til að bæta upp fyrir tímabilið – ,,Það er svo sárt“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Emelía dóttir Óskars Hrafns lánuð til Selfoss frá Svíþjóð

Emelía dóttir Óskars Hrafns lánuð til Selfoss frá Svíþjóð
433Sport
Í gær

Birkir Bjarnason aftur heim til Noregs

Birkir Bjarnason aftur heim til Noregs
433Sport
Í gær

Könnun: Hver finnst þér að eigi að taka við íslenska landsliðinu?

Könnun: Hver finnst þér að eigi að taka við íslenska landsliðinu?
433Sport
Í gær

Greenwood vill snúa aftur sem fyrst

Greenwood vill snúa aftur sem fyrst