David dea Gea hefur sent frá sér dulin skilaboð á Twitter eftir fréttir gærkvöldsins um að hann sé mögulega að snúa aftur til Manchester United.
De gea var áður í tólf ár hjá félaginu en samkvæmt enskum blöðum vill United fá inn markvörð þar sem Andre Onana fer í Afríkukeppnina í janúar.
United keypti Onana frá Inter í sumar en þá var hann hættur að spila fyrir landslið Kamerún. Hann er hins vegar mættur aftur í landsliðið.
De Gea birti tjákn á Twitter af hugsandi manni sem ensk blöð tengja við fréttirnar.
De Gea var hent út af Old Trafford í sumar af Erik ten Hag sem vildi kaupa Onana. Segir í fréttinni að félagið vilji fá hann aftur.
De Gea er án félags eftir að United lét hann fara en hann hefur mikið verið í borginni undanfarnar vikur.
Ef Kamerún gengur vel þá verður Onana í burtu í heilan mánuð og þá vill enska félagið ganga frá samningi við De Gea til skamms tíma.
🤔
— David de Gea (@D_DeGea) October 26, 2023