Íslenska U19 ára landslið kvenna vann frábæran 6-2 sigur gegn Skotlandi í fyrsta leik sínum í fyrstu umferð undankeppni EM 2024.
Katla Tryggvadóttir skoraði þrennu og þær Bergdís Sveinsdóttir, Sigdís Eva Bárðardóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir skoruðu allar eitt mark.
Ísland mætir næst Hvíta-Rússlandi á föstudag og hefst sá leikur kl. 13:00.