Barcelona þarf að skera niður hjá sér næsta sumar og minnka launakostnað um 177 milljónir punda í sumar. La Liga krefur félagið um þetta.
La Liga tekur hart á fjármagnsreglum félaga og hefur haft Barcelona undir smásjá undanfarin ár.
Barcelona hefur glímt við mikil fjárhagsvandræði en þarf að skera niður kostnað til að komast í gegnum regluverk La Liga.
Frenkie de Jong og Ansu Fati leikmenn félagsins eru líkleg söluvara en báðir hafa verið orðaðir við Manchester United og fleiri lið.
United reyndi að kaupa De Jong síðasta sumar en það gekk ekki eftir, það gæti þó gengið upp í sumar þegar Barcelona verður að skera niður kostnað.
Sergio Busquets, Jordi Alba, Ousmane Dembele, Sergi Roberto og Franck Kessie eru einnig tölu sölu eða geta farið ef marka má fréttir á Spáni