Chelsea hefur rekið Damian Willoughby sem yfirmann markaðamsála eftir að hafa sent klúrin skilaboð á Catalina Kim starfsmann félagsins.
Kim starfar í fjármálunum hjá Chelsea en skilaboðin sem Willoughby hafði sent henni birtast í enskum blöðum í dag.
Willoughby hafði þá sent skilaboð um að hann væri nakinn og hvort hún væri það ekki líka.
„Kemur þú til London og verður óþekk,“ skrifaði Willoughby til Kim en hún var fljót að svara því neitandi.
Willoughby lofaði Kim að koma henni í samband við Ferran Soriano stjórnarformann Manchester City ef hún væri óþekk.
Kim sakar Willoughby um að hafa sent kynferðisleg myndbönd af sér til sín. svo Hluta af skilaboðunum má sjá hér að neðan.