ÍBV 0 – 3 Valur
0-1 Elín Metta Jensen (’31)
0-2 Þórdís Elva Ágústsdóttir (’42)
0-3 Mist Edvardsdóttir (’56)
Valur er með níu stiga forskot á toppnum í Bestu deild kvenna eftir leik við ÍBV í kvöld.
Leikið var á Hásteinsvelli en Valur vann að lokum sannfærandi með þremur mörkum gegn engu.
Eftir 16 umferðir er Valur með 39 stig á toppnum, níu stigum á undan Breiðabliki.
Valur er því hársbreidd frá því að tryggja sér titilinn en liðið á eftir að spila tvo leiki.