fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
433Sport

Framherji Breiðabliks í tveggja leikja bann eftir að Klara sendi myndband á aganefnd

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 8. júní 2022 12:00

Omar Sowe Mynd/Helgi Viðar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ úrskurðaði í gær Omar Sowe framherja Breiðabliks í tveggja leikja bann vegna olnbogaskots í leik gegn Leikni í lok maí.

Fótbolti.net fjallar um málið og segir að Omar hafi verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að gefa Brynjari Hlöðverssyni olnbogaskot.

Dómari leiksins tók ekki eftir atvikinu en Klara Bjartmarz framkvæmdarstjóri KSí sendi myndbandsupptöku á aganefndina sem úrskurðar Omar í tveggja leikja bann.

„Er það mat nefndarinnar að atvik það sem vitnað er til í greinargerð framkvæmdastjóra frá 31. maí sl. og jafnframt birtist á myndskeiði sem fylgir með greinargerð framkvæmdastjóra, sé alvarlegt agabrot. Atvik hafi hvorki dómari né aðstoðarmenn hans séð,“ segir í úrskuði nefndarinnar.

Sowe er á láni hjá Breiðablik frá New York Red Bulls og hefur skorað tvö mörk fyrir Blika í Bestu deildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Duran aftur til Evrópu

Duran aftur til Evrópu