Jack Grealish, Declan Rice og Andy Robertson eru þessa stundina staddir í Las Vegas þar sem þeir njóta sumarfrísins.
Ensk götublöð fjalla um leikmennina þar sem þeir djamma og djúsa með félögum sínum eftir erfitt tímabil í boltanum.
Grealish varð Englandsmeistari með Manchester City eftir hörkubaráttu við Robertson og félaga í Liverpool. Rice var hluti af liði West Ham sem hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar.
Það mátti til að mynda sjá Grealish og Robertson í sundlaugapartíi þar sem þeir helltu í sig rándýru áfengi.
Grealish er í sambandi með Sasha Attwood en er þó sagður umkringdur stelpum öllum stundum í Vegas.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá djammi þeirra félaga.