Karim Benzema jafnaði rétt í þessu metin fyrir Real Madrid í leik gegn PSG sem nú stendur yfir í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
PSG leiddi 1-0 eftir fyrri leikinn.
Kylian Mbappe hafði komið PSG yfir í fyrri hálfleik í kvöld. Benzema jafnaði svo nú eftir um klukkutíma leik eftir afar slæm mistök Gianluigi Donnarumma í marki PSG.
Markið má sjá hér.