Anna Petryk, úkraínsk landsliðskona, er genginn í raðir Breiðabliks.
Hin 24 ára gamla Anna kemur frá Kharkiv í heimalandinu. Liðið leikur í samnefndri borg sem lögð hefur verið í rúst af Rússlandsher.
Anna lék með Kharkiv gegn Blikum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fyrir áramót.
Þá á Anna að baki 20 A-landsleiki fyrir hönd Úkraínu.