fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Edda segir að Óli Kristjáns hafi verið sá eini sem þorði að mæta – Neitaði að uppljóstra nöfnunum

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 30. desember 2022 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, segir að Ólafur Kristjánsson hafi verið eini karlmaðurinn sem tók boði um að fjalla um Evrópumót kvennalandsliða í knattspyrnu á stöðinni í sumar.

Edda sagði frá þessu í Dagmálum á Morgunblaðinu. Þar var verið að gera upp íþróttaárið.

Þetta kom upp í kjölfar umræðu um karla sem starfa innan íþrótta kvennamegin.

Það eru ekki allir sem þora. Við höfum stundum talað um Óla Kristjáns, hann er sá eini sem þorði að fjalla um EM kvenna með okkur í sumar. Ég verð að gefa þessum mönnum stórt hrós,“ segir Edda.

Þáttastjórnandinn Bjarni Helgason spurði Eddu hvaða menn hefðu hafnað því að mæta og fjalla um EM á RÚV í sumar en hún vildi ekki gefa það upp.

„Ég ætla ekki að segja það.“

Íslenska landsliðið var með á EM í sumar. Liðið gerði jafntefli í öllum leikjum sínum en mistókst að komast upp úr riðlinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Chelsea fær sekt og félagaskiptabann

Chelsea fær sekt og félagaskiptabann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney