„Það er með mikilli ánægju að stjórn knattspyrnudeildar Víkings Ó. tilkynnir að félagið hefur ráðið Brynjar Kristmundsson sem nýjan þjálfara félagsins. Samningur Brynjars er til tveggja ára,“ segir í tilkynningu frá Víkingi Ólafsvík sem leikur í 2 deild karla.
Félagið ákvað að slíta samstarfi sínu við Guðjón Þórðarson á dögunum eftir misjafnan árangur í 2 deildinin í ár.
„Undanfarin þrjú tímabil hefur Brynjar starfað sem aðstoðarþjálfari félagsins og hefur hann staðið sig vel. Var hann fyrsti kostur félagsins þegar kom að því að ráða nýjan þjálfara og því mikil ánægja með ráðninguna. Sjálfur kveðst Brynjar spenntur fyrir þessari nýju áskorun,“ segir í tilkynningu.
“Starfið leggst mjög vel í mig. Félagið hefur verið risastór partur af mínu lífi og er ég virkilega stoltur að vera kominn í þetta starf,” sagði Brynjar við undirskriftina og bætir við að hann hafi sótt mikla reynslu hjá forvera sínum, Guðjóni Þórðarsyni.
“Ég hef fengið frábæran skóla undanfarin ár og að hafa starfað með manni eins og Guðjóni hefur verið mjög dýrmæt reynsla fyrir mig.”