Valur vann 12-0 sigur á grönnum sínum í KR í Reykjavíkurmótinu í gær en úrslitin vekja verulega athygli. Kvennalið KR telur sig hins vegar hafa staðið sig með miklum ágætum.
KR er komið aftur í deild þeirra bestu en rígurinn á milli félaganna gerir úrslitin enn áhugaverðari. „Við spiluðum okkar 2 leik í Reykjavíkurmótinu gegn Val nú síðdegis og endaði leikurinn 12-0 fyrir Val. Við stóðum okkur vel þrátt fyrir svona stórtap gegn Íslandsmeisturum síðan í fyrra en í leiknum spiluðu 2 nýjar sinn fyrsta leik,“ segir á Facebook síðu KR.
Hjörvar Hafliðason, sjálfur Dr. Football fór yfir þetta mál í þætti sínum í dag. „Hvað er í gangi í Vesturbænum? Að ljúga að meistarflokks leikmönnum að þær hafi staðið sig vel í 12-0 tapi. Þetta stendur hérna,“ sagði Hjörvar sem var hneykslaður.
Hrafnkell Freyr Ágústsson stundum kallaður First-North blöskraði þetta. „Þetta er til skammar, þetta eru tölur sem við sáum í kvennabolta fyrir 15-20 árum. Þetta eru lið sem spila í efstu deild, þetta er ekki hugarfar KR-inga.“
Færsluna má sjá hér að neðan.