fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
433Sport

Sjáðu myndina: Ronaldo stelur fyrirsögnunum áfram – 97 milljóna króna lúxuskerran fest

Helgi Sigurðsson
Fimmtudaginn 7. júlí 2022 08:33

Georgina Rodriguez og Cristiano Ronaldo / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rolls-Royce bifreið Cristiano Ronaldo hefur verið fest í Lissabon í heimalandi hans, Portúgal.

Bíllinn kostaði um 97 milljónir íslenskra króna og var festur fyrir utan verslunarmiðstöð. Mynd af þessu má sjá hér að neðan.

Framtíð Ronaldo er í lausu lofti þessa stundina. Enskir miðlar halda því nú fram að Manchester United, félag hans, sé búið að sætta sig við að stjarnan sé að fara.

Ronaldo sneri aftur til Man Utd í fyrra, tólf árum eftir að hann yfirgaf félagið fyrir Real Madrid.

Sjálfur átti Portúgalinn fínasta tímabil en liðið olli hins vegar vonbrigðum og hafnaði í sjötta sæti. Það þýðir að Man Utd mun leika í Evrópudeildinni á næstu leiktíð, eitthvað sem Ronaldo getur ekki hugsað sér en hann ætlar að spila með liði í Meistaradeild Evrópu.

Ronaldo hefur ekki mætt til æfinga eftir sumarfrí og er ólíklegt að hann fari með Man Utd í æfingaferð. Haldið verður utan á föstudag.

Man Utd hefur hingað til haldið því fram að Ronaldo sé ekki til sölu. Nú áttar félagið sig hins vegar á því að leikmaðurinn hefur tekið ákvörðun og honum verði ekki haggað.

Ronaldo hefur hvað mest verið orðaður við Chelsea. Þá hafa Bayern Munchen og Napoli einnig verið nefnd til sögunnar. Öll félögin leika í Meistaradeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þetta er sú staða sem Liverpool vill styrkja þegar Arne Slot tekur við

Þetta er sú staða sem Liverpool vill styrkja þegar Arne Slot tekur við
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ætlar að einblína á neðri deildirnar í nýju hlaðvarpi

Ætlar að einblína á neðri deildirnar í nýju hlaðvarpi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Elvar segir frá sögu sem hann heyrði um Adam Ægi á knæpu í Reykjavík

Elvar segir frá sögu sem hann heyrði um Adam Ægi á knæpu í Reykjavík
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Öflugur framherji sterklega orðaður við Arsenal eftir að þessi mynd birtist

Öflugur framherji sterklega orðaður við Arsenal eftir að þessi mynd birtist