Lengjudeildarlið KV hefur formlega kynnt Sigurð Víðisson sem nýjan þjálfara. Agnar Þorláksson verður aðstoðarmaður hans.
Sigurður tekur við liðinu af Sigurvini Ólafssyni. Sá er að fara að taka við sem aðstoðarmaður Eiðs Smára Guðjohnsen hjá FH.
Sigurður hefur stýrt liðum á borð við Fjölni og HK/Víkings í kvennaflokki og verið aðstoðarþjálfari hjá karlaliði Breiðabliks. Þá stýrði hann Blikum um stutt skeið eftir brottrekstur Arnars Grétarssonar á sínum tíma.
KV er í ellefta sæti deildarinnar með fjögur stig.
Við kynnum til leiks nýtt þjálfarateymi.
Sigurður Víðisson aðalþjálfari og Agnar Þorláksson aðstoðarþjálfari.
Siggi og Aggi taka formlega við liðinu í dag og munu stýra því út keppnistímabilið. Þeir þekkja báðir vel til félagsins og bjóðum við þá hjartanlega velkomna til starfa pic.twitter.com/RY4ZAy9LPB— KV Fótbolti (@KVfotbolti) June 23, 2022