fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
433Sport

Kári segir KSÍ hafa dregið lappirnar þegar hann vildi starfið – Óttast að þekking tapist

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 5. janúar 2022 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi segir að KSÍ hafi dregið lappirnar í viðræðum um að hann gerðist yfirmaður knattspyrnumála hjá sambandinu. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu.

Kári sóttist eftir starfinu snemma árs og vildi taka við starfinu af Arnari Viðarssyni sem er enn með starfið þrátt fyrir að hafa verið A-landsliðs þjálfari karla í heilt ár.

„Ég átti afar góðar samræður við Guðna Bergsson, sem þá var formaður KSÍ, og Arnar [Þór Viðarsson]. Mér fannst eðlilegt að nýr maður myndi stíga inn í starf yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ eftir að Arnar tók við sem aðalþjálfari, enda er það fullt starf og rúmlega það,“ segir Kári við Viðskiptablaðið í áhugaverðu viðtali.

Eyþór Árnason/Fréttablaðið

„Ástæðan fyrir því að ég sótti um starfið er sú að fyrir mér þá verður einhver sem hefur verið í kringum landsliðið, sem hefur náð frábærum árangri á undanförnum árum, að gegna þessari stöðu. Það þarf ekkert endilega að vera ég, það getur allt eins verið einhver annar af mínum fyrrverandi liðsfélögum.“

Kári segir KSÍ hafa dregið lappirnar í viðræðunum og sökum þess hafi hann tekið starfið hjá Víkingi þegar það bauðst.

„Auk þess verður að gæta þess að þessi vitneskja sem varð til í þessari sögulegu velgengni hverfi ekki út úr sambandinu. Annars er landsliðið alltaf í einhverjum uppbyggingarfasa. Sem dæmi hefur oft verið talað um að yngja þurfi upp landsliðshópinn, sem er skiljanleg umræða. Það má þó ekki gleyma því að í A-landsliðinu snúast hlutirnir fyrst og fremst um að ná árangri. Ef það er með reglubundnum hætti verið að fá inn nýja þjálfara sem ekki tengdust landsliðinu meðan vel gekk og því ekki öðlast þekkingu á hvað þurfi til að vinna landsleiki, er hætta á því að sú kunnátta hverfi út úr sambandinu. Það er þetta sem ég hef áhyggjur af og þess vegna sótti ég um starfið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fyrrum þjálfari hjá United með ráð – Segir þetta augljósa kostinn verði Amorim rekinn

Fyrrum þjálfari hjá United með ráð – Segir þetta augljósa kostinn verði Amorim rekinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Dramatík í Kórnum – Öll mörk komu í seinni hálfleik í sjö marka leik

Dramatík í Kórnum – Öll mörk komu í seinni hálfleik í sjö marka leik
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Evrópumeistararnir sýndu hetju gærkvöldsins áhuga

Evrópumeistararnir sýndu hetju gærkvöldsins áhuga
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Chelsea nýtir sér nýja reglu sem UEFA setti í síðustu viku

Chelsea nýtir sér nýja reglu sem UEFA setti í síðustu viku
433Sport
Í gær

Tekjur United aldrei meiri en á síðustu leiktíð – Áfram taprekstur en miklu minni en árið áður

Tekjur United aldrei meiri en á síðustu leiktíð – Áfram taprekstur en miklu minni en árið áður
433Sport
Í gær

Þetta er upphæðin sem United þarf að borga Amorim fyrir að reka hann

Þetta er upphæðin sem United þarf að borga Amorim fyrir að reka hann