fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
433Sport

Enski deildabikarinn: Moyes henti Man Utd úr leik – Arsenal, Chelsea og Tottenham áfram

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. september 2021 20:59

Manuel Lanzini fagnar í kvöld. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sex leikjum lauk nýlega í enska deildabikarnum. Um var að ræða 32-liða úrslit keppninnar.

Man Utd 0-1 West Ham

West Ham gerði sér lítið fyrir og vann Manchester United á Old Trafford.

Eina mark leiksins skoraði Manuel Lanzini á 9. mínútu.

Arsenal 3-0 Wimbledon

Arsenal vann þægilegan sigur á Wimbledon. Leikið var á Emirates-leikvanginum.

Alexandre Lacazette kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu á 11. mínútu.

Næsta mark lét bíða eftir sér allt þar til á 77. mínútu. Þá tvöfaldaði Emile Smit-Rowe forystu Arsenal. Eddie Nketiah innsiglaði svo 3-0 sigur stuttu síðar.

Millwall 0-2 Leicester

Jón Daði Böðvarsson sat allan tímann á varamannabekk Millwall í 0-2 tapi gegn Leicester á heimavelli.

Ademola Lookman skoraði fyrra mark Leicester á 50. mínútu. Kelechi Iheanacho gerði það síðara undir lok leiks.

Brighton 2-0 Swansea

Brighton vann 2-0 sigur á heimavelli gegn Swansea.

Aaron Connolly skoraði bæði mörk liðsins í fyrri hálfleik.

Chelsea 1-1 Aston Villa (4-3 eftir vítaspyrnukeppni)

Chelsea sló Aston Villa úr leik í viðureign sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni.

Timo Werner kom Chelsea yfir á 54. mínútu. Cameron Archer jafnaði fyrir Villa tíu mínútum síðar.

Jafnt var eftir venjulegan leiktíma. Farið var beint í vítaspyrnukeppni.

Þar skoruðu Romelu Lukaku, Mason Mount, Ross Barkley og Reece James allir fyrir Chelsea. Á sama tíma klikkuðu Marvelous Nakamba og Ashley Young á sínum spyrnum fyrir Villa. Chelsea fer því áfram.

Wolves 2-2 Tottenham (2-3 eftir vítaspyrnukeppni)

Leikur Wolves og Tottenham fór sömuleiðis í vítaspyrnukeppni.

Tanguy Ndombele kom gestunum í Spurs yfir á 14. mínútu. Harry Kane tvöfaldaði forystuna á 23. mínútu.

Leander Dendoncker minnkaði muninn fyrir Wolves fyrir leikhlé. Á 58. mínútu jafnaði Daniel Podence svo leikinn. Lokatölur 2-2 og því farið beint í vítaspyrnukeppni.

Þar skoruðu Harry Kane, Sergio Reguilon og Bryan Gil allir fyrir Tottenham. Ruben Neves, Leander Dendoncker og Conor Coady klikkuðu allir fyrir Wolves. Tottenham fer því áfram.

Dregið verður í 16-liða úrslit síðar í kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Duran aftur til Evrópu

Duran aftur til Evrópu