fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
433Sport

Pepsi Max-deild karla: Kiddi Jóns hetja KR – Víkingar á toppinn

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 29. ágúst 2021 18:58

Kristinn Jónsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveimur leikjum er nýlokið í 19. umferð Pepsi Max-deildar karla.

FH 1-2 Víkingur Reykjavík

Víkingur vann mjög mikilvægan útisigur á FH.

Nikolaj Hansen skoraði eina mark fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Pablo Punyed.

Erlingur Agnarsson tvöfaldaði forystu Víkinga á 53. mínútu. Hann skoraði þá með skalla eftir fyrirgjöf Kristals Mána Ingasonar.

Björn Daníel Sverrison minnkaði muninn fyrir FH þegar hann skoraði með hjólhestaspyrnu.

FH gerði atlögu að marki Víkinga í lok leiks en tókst ekki að finna annað mark. 1-2 sigur Víkings staðreynd.

Víkingur er á toppi deildarinnar með 39 stig eftir 19 leiki. Breiðablik, sem er í öðru sæti með stigi minna, á þó leik inni.

FH siglir lignan sjó um miðja deild, eru með 26 stig í sjötta sæti.

KR 2-1 Leiknir Reykjavík

KR tók á móti Leikni og vann góðan sigur.

Eftir nokkuð fjörugan fyrri hálfleik var staðan markalaus.

Það voru gestirnir sem komust yfir um miðjan seinni hálfleik með marki Daníels Finns Matthíassonar eftir undirbúning Daða Bærings Halldórssonar.

Þegar 20 mínútur lifðu leiks jafnaði Kristinn Jónsson fyrir KR.

Það var svo á 87. mínútu sem Kristinn skoraði sitt annað mark og tryggði heimamönnum mikilvæg þrjú stig. Lokatölur 2-1.

KR er í fjórða sæti deildarinnar með 35 stig, 3 stigum á eftir Breiðabliki sem er í Evrópusæti og 4 stigum á eftir toppliði Víkings.

Leiknir er í áttunda sæti með 22 stig eftir 19 leiki, 6 stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Duran aftur til Evrópu

Duran aftur til Evrópu