Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að Virgil van Dijk, miðvörður liðsins, gæti snúið aftur á knattspyrnuvöllinn er Liverpool mætir Hertha Berlin í æfingaleik á fimmtudag.
Hinn þrítugi Van Dijk meiddist illa á hné í nágrannaslag gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni síðastliðinn október. Hann hefur ekki leikið síðan.
Klopp greindi einnig frá því að Joe Gomez gæti snúið aftur fljótlega.
Þessi 24 ára gamli miðvörður hefur glímt við meiðsli frá því í nóvember síðastliðnum. Hann meiddist í leik með enska landsliðinu.
,,Ef Virgil getur spilað 20 mínútur núna þá getur Joe líklega gert það í leiknum á eftir. Við sjáum til. Þeir líta báðir mjög vel út á æfingum,“ sagði Klopp.