Sjónvarpsþáttur 433.is er á dagskrá Hringbrautar á þriðjudögum klukkan 20:00. Um er að ræða síðasta þátt fyrir sumarfrí en þátturinn fer aftur á dagskrá í ágúst.
Í þætti kvöldsins kemur Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Grindavíkur í heimsókn og ræðir góða stöðu liðsins í Lengjudeildinni.
Benedikt Bóas Hinriksson, blaðasnápur á Fréttablaðinu mætir svo og veltir því fyrir sér hvort Rúnar Kristinsson þjálfari KR þurfi að óttast um starf sitt.
Þáttinn má sjá í heild hér að neðan.