fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
433Sport

Enski boltinn: Ronaldo öflugur í góðum sigri Manchester United á Arsenal

Helga Jónsdóttir
Fimmtudaginn 2. desember 2021 22:13

Myndin tengist fréttinni ekki beinti / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United tók á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Leiknum lauk með 3-2 sigri heimamanna.

Arsenal komst yfir þegar tæpur stundarfjórðungur var liðinn af leiknum en markið var mjög umdeilt. Arsenal fékk hornspyrnu og virtist Fred, miðjumaður Manchester United, hafa farið í David de Gea og hann lagðist niður á grasið sárþjáður. Smith-Rowe fékk boltann fyrir utan teiginn og skoraði auðveldlega. Bruno Fernandes jafnaði metin rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var jafnt er flautað var til hálfleiks.

Cristiano Ronaldo kom heimamönnum yfir í byrjun seinni hálfleiks eftir flotta sókn en þetta var hans 800. mark á ferlinum. Martin Odegaard jafnaði metin aðeins þremur mínútum síðar eftir góða sendingu frá Martinelli. Manchester United fékk svo vítaspyrnu þegar Odegaard braut á Fred og var atvikið skoðað í VAR. Ronaldo tók spyrnuna og skoraði af öryggi. Ekki voru fleiri mörk skoruð og 3-2 sigur Manchester United niðurstaðan.

Arsenal er í 5. sæti með 23 stig og Manchester United í 7. sæti með 21 stig.

Manchester United 3 – 2 Arsenal
0-1 Emile Smith-Rowe (´14)
1-1 Bruno Fernandes (´44)
2-1 Cristiano Ronaldo (´52)
2-2 Martin Odegaard (´55)
3-2 Cristiano Ronaldo (´70)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Duran aftur til Evrópu

Duran aftur til Evrópu