fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433Sport

Íhuga það alvarlega að reka Solskjær – Stjórnin fundar

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 25. október 2021 15:07

Mynd: GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamenn Manchester United íhuga það nú alvarlega að reka Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóra liðsins, úr starfi eftir dapurt gengi undanfarið. Þetta herma heimildir Manchester Evening News en toppar félagsins munu funda og taka ákvörðun um næstu skref.

Upp hafa sprottið háværar raddir þess efnis að Solskjær verði rekinn en Manchester United beið afhroð gegn erkifjendum sínum í Liverpool er liðin mættust á heimavelli Manchester United, Old Trafford í gær. Leiknum lauk með 5-0 sigri Liverpool.

Leikmenn Manchester United eru ekki á skipulagðri æfingu í dag, heldur fengu þeir hvíldardag. Liðið mætir Tottenham um næstu helgi og á framundan erfitt leikjaprógram.

Heimildir Manchester Evening News herma að stjórnin íhugi það alvarlega að reka Norðmanninn úr stöðu knattspyrnustjóra.

Gengi Manchester United á tímabilinu hefur verið undir væntingum. Miklum fjárhæðum var eytt til leikmannakaupa fyrir tímabilið en United situr í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hafna tilraunum Börsunga

Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna
433Sport
Í gær

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik
433Sport
Í gær

Hákon og félagar töpuðu í Birmingham – Sverrir fékk skell

Hákon og félagar töpuðu í Birmingham – Sverrir fékk skell