Forráðamenn Newcastle United munu funda með Portúgalanum Paulo Fonseca á næsta sólarhringnum með það að markmiði að gera hann að næsta knattspyrnustjóra félagsins. Þetta herma heimildir Daily Mail og fleiri miðla.
Forráðamenn félagsins höfðu áður átt samtal við Portúgalann en núna verður farið í formlegar viðræður við knattspyrnustjórann sem hefur verið án starfs síðan hann yfirgaf herbúðir Roma í sumar.
Fonseca er talinn aðlaðandi kostur í Newcastle borg og það auðveldar málin að hann er án félags í augnablikinu. Ef fundurinn milli þessara aðila gengur vel mun allur forgangur vera settur á að gera hann að næsta knattspyrnustjóa Newcastle United.
Paulo Fonseca á að baki farsælann feril sem knattpyrnustjóri. Hann gerði garðinn frægan með Shakhtar Donetsk á árunum 2016-2019, vann úkraínsku deildina og bikarinn þrjú ár í röð og gerði félagið gildandi í Evrópukeppnum.
Frá Shaktar hélt hann til Ítalíu og tók við Roma en náði ekki að vinna titla þar.