fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
433Sport

Lengjudeild karla: Fram fór taplaust í gegnum tímabilið – Þór og Víkingur Ó sigruðu í markaleikjum

Helga Jónsdóttir
Laugardaginn 18. september 2021 15:55

Mynd/Heimasíða Fram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er fjórum leikjum í lokaumferð Lengjudeildar karla lokið. Ljóst var fyrir umferðina hvaða lið fara upp í Pepsi Max deildina og hvaða lið fara niður. Fram og ÍBV hafa tryggt sér sæti í efstu deild en Víkingur Ó og Þróttur R. spila í 2. deild á næsta ári.

Fram vann góðan 6-1 sigur á Aftureldingu sem þýðir að liðið fer taplaust í gegnum mótið sem er ótrúlegur árangur. Arnór Gauti kom Aftureldingu yfir í leiknum en þá vöknuðu Framarar og skoruðu fjögur áður en flautað var til hálfleiks. Alexander Már Þorláksson bætti svo við tveimur í seinni hálfleik en hann skoraði alls fjögur í leiknum.

Víkingur Ó sigraði Grindavík 4-2 í fjörugum leik á Grindavíkurvelli. Þróttur og Þór áttust við í markaleik á Eimskipsvellinum þar sem Þór hafði betur. Þróttur komst í 2-0 í leiknum en leikmenn Þórs gáfust ekki upp og komu til baka og sigruðu 3-2.

Þá hafði Fjölnir betur gegn Selfyssingum á Jáverk-vellinum. Viktor Andri Hafþórsson skoraði eina mark leiksins.

Fram 6 – 1 Afturelding
0-1 Arnór Gauti Ragnarsson (´21)
1-1 Hlynur Atli Magnússon (´25)
2-1 Alexander Már Þorláksson (´36)
3-1 Alexander Már Þorláksson (´41)
4-1 Kyle McLagan (´45)
5-1 Alexander Már Þorláksson (´68)
6-1 Alexander Már Þorláksson (´75)

Grindavík 2 – 4 Víkingur Ó
0-1 Harley Willard (´5)
1-1 Josip Zeba (´6)
1-2 Bjartur Bjarni Barkarson (´29)
1-3 Kareem Isiaka (´43)
2-3 Gabriel Dan Robinson (´48)
2-4 Kareem Isiaka (´82)

Þróttur R. 2 – 3 Þór
1-0 Kairo Edwards-John (´5)
2-0 Sam Ford (´12)
2-1 Bjarni Guðjón Brynjólfsson (´15)
2-2 Bjarni Guðjón Brynjólfsson (´57)
2-3 Fannar Daði Malmquist Gíslason (´61)

Selfoss 0 – 1 Fjölnir
0-1 Viktor Andri Hafþórsson (´65)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vilja kaupa þrjá öfluga leikmenn í janúar

Vilja kaupa þrjá öfluga leikmenn í janúar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ungur drengur sem hefur misst föður sinn og ömmu fékk fallega heimsókn – Hefur reynst mömmu sinni klettur í gegnum erfið veikindi

Ungur drengur sem hefur misst föður sinn og ömmu fékk fallega heimsókn – Hefur reynst mömmu sinni klettur í gegnum erfið veikindi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

United vilja leikmann frá Fílabeinsströndinni – City hefur líka áhuga

United vilja leikmann frá Fílabeinsströndinni – City hefur líka áhuga
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Vill fara frá Chelsea í janúar

Vill fara frá Chelsea í janúar
433Sport
Í gær

Breiðablik framlengir við Kristinn Jónsson – Verður 36 ára á næsta ári

Breiðablik framlengir við Kristinn Jónsson – Verður 36 ára á næsta ári
433Sport
Í gær

Óli var aldrei á hjóli – Keyrði einn um bæinn í nokkra klukkutíma til að róa taugarnar

Óli var aldrei á hjóli – Keyrði einn um bæinn í nokkra klukkutíma til að róa taugarnar