fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
433Sport

FH sendir frá sér yfirlýsingu vegna frétta um að meintur gerandi sé í herbúðum félagsins

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 1. september 2021 10:05

Frá Kaplakrikavelli. Skjáskot - Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FH hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta sem bárust í gær, var yfirlýsingin birt á heimasíðu félagsins seint í gærkvöldi. Knattspyrnuvefsíðan Fótbolti.net hafði óskað eftir svörum frá FH vegna ásakana um að leikmaður í meistaraflokki félagsins sé sakaður um nauðgun. Fótbolti.net byggði frétt sína á Twitter færslu sem Hulda Hrund Sig­munds­dótt­ir, meðlimur í aðgerðarhópnum Öfgar setti fram á Twitter síðu sína.

Knattspyrnuhreyfingin á Íslandi situr undir þungum ásökunum þessa dagana þar sem fjöldi meintra kynferðisbrota er til umræðu. „Við getum þó gefið Klöru það að hún sagði satt og rétt frá að hópnauðgunarferlið gekk ekki betur en það að meintur gerandinn er enn í byrjunarliði FH og þjálfar yngri flokka,“ skrifaði Hulda Hrund á Twitter.

FH-ingar hafa skrifað yfirlýsingu þar sem félagið segist fordæma hvers kyns of­beld­is­hegðun. Þá segir að félagið hafi hitt ráðgjafa og fulltrúa ÍSÍ vegna málsins. Þar segir að vinna í þessum málum muni hafa forgang í starfi félagsins.

Yfirlýsing FH:
Aðal­stjórn FH er mjög meðvituð um umræðuna um of­beld­is- og kyn­ferðis­brot inn­an knatt­spyrn­unn­ar, tek­ur hana al­var­lega og for­dæm­ir hvers kyns of­beld­is­hegðun. Full­trú­ar fé­lags­ins hafa hitt ráðgjafa og full­trúa ÍSÍ, Kol­brúnu Hrund Sig­ur­geirs­dótt­ur, vegna viðbragða í þess­um erfiðu mál­um og mun sú vinna halda áfram og hafa for­gang í starfi fé­lags­ins.

f.h. Fim­leika­fé­lags Hafn­ar­fjarðar
Viðar Hall­dórs­son
formaður aðal­stjórn­ar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Duran aftur til Evrópu

Duran aftur til Evrópu