fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Þetta sagði Klara eftir örlagafund KSÍ – „Við gerðum þetta ekki nógu vel. Við áttum að gera betur“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 29. ágúst 2021 17:57

Klara Bjartmarz, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ. Mynd: KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn KSÍ hefur fundað stíft um helgina, bæði í dag og gær. Klukkan 16 í dag voru síðan allir starfsmenn KSÍ boðaðir á fund í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Við upphaf starfsmannafundarins gaf KSÍ út stutta tilkynningu þess efnis að Guðni Bergsson, formaður KSÍ, hefði sagt af sér formennsku. Afsögnin er, sem kunnugt er, í skugga ásakana um kynferðisbrot og önnur ofbeldisbrot nokkurra landsliðsmanna í knattspyrnu. Meginástæðan fyrir afsögn Guðna er sú að hann fór rangt með í sjónvarpsviðtali er hann staðhæfði að KSÍ hefði ekki borist tilkynning um kynferðisbrot landsliðsmanna.

Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, ræddi við Vísir.is eftir langan starfsmannafund KSÍ. Stjórn KSÍ hefur fundað alla helgina og sagði Klara að málið væri vandasamt og þess vegna tækju fundahöld langan tíma.

Stjórn KSÍ situr áfram, en óvíst hvað lengi. Hún fundar enn frekar vegna yfirlýsingar frá KSÍ sem er í smíðum.

„Þolendur eiga von á afsökunarbeiðni frá KSÍ. Þeir sem hafa lagt sitt af mörkum við að vekja athygli á þessum málum verða einnig beðnir afsökunar,“ sagði Klara í viðtali við Vísir.is.

„Við gerðum þetta ekki nógu vel. Við áttum að gera betur,“ sagði Klara. Hún segir að KSÍ kunni knattspyrnu en kunni ekki að fara með mál af þessu tagi, þ.e. kynferðisbrot. Þess vegna hafi KSÍ í dag leitað ráðgjafar hjá fólki sem þekkir til þessara mála, meðal annars hefur verið fundað með Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur, framhaldsskólakennara og formanni jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, sem og fulltrúa frá Stígamótum.

„Umbótaferli er hafið,“ sagði Klara og lagði áherslu á að sú vinna yrði í höndum óháðra fagaðila.

KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu – sjá hér

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

U-beygja ekki í kortunum

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna